
Orlofshús í HveragerðiHveragerði, Suðurlandi
Um bústaðinn
Hús fyrir alla fjölskylduna, í hjarta Hveragerðis
Slakaðu á með allri fjölskyldunni í fallega húsinu okkar við ána Varmá í Hveragerði. Húsið er eitt af elstu húsum bæjarins og hefur verið í eigu sömu fjölskyldu frá því það var byggt, en verið gert upp í gegnum árin. Náttúran er allt í kring og stutt er að ganga á veitingastaði, í matvöruverslun, listasafn, á leikvöll og í sundlaugina.
Húsið
Húsið er á þremur hæðum.
Jarðhæð: stofa, borðstofa og eldhús, eitt svefnherbergi (tvíbreitt rúm, 140 cm) og baðherbergi.
Önnur hæð: þrjú svefnherbergi (tvö með 180 cm tvíbreiðum rúmum og eitt með tveimur einbreiðum rúmum), sjónvarpsherbergi, baðherbergi og heitur pottur á svölunum.
Þriðja hæð: tvö svefnherbergi með einbreiðum rúmum.
Aðgangur gesta
Gestir hafa aðgang að öllu húsinu, nema fataherbergi og háalofti.
- Gestir
- Allt að 10 gestir
- Svefnherbergi
- 6 svefnherbergi, 2 baðherbergi
- Lágmarksdvöl
- 3 nætur
- Verð
- €1000 á nótt
- Þrifagjald
- €150
- Innritun
- frá kl. 16:00
- Útritun
- fyrir kl. 11:00
- Gæludýr
- Ekki leyfð
Aðstaða
- Þráðlaust net
- Frí bílastæði
- Heitur pottur
- Pallur / verönd
- Grill
- Arinn
- Ofnakynding
- Fullbúið eldhús
- Bakarofn
- Örbylgjuofn
- Ísskápur
- Uppþvottavél
- Kaffivél
- Þvottavél
- Þurrkari
- Sjónvarp
- Vinnuaðstaða
- Garður
- Fjallasýn
- Hleðslustöð fyrir rafbíl
- Barnarúm
- Rúmföt og handklæði
- Reykskynjari
- Reykingar bannaðar
Myndir







Staðsetning og aðgengi
Húsið er í Hveragerði, rétt við ána Varmá, um 45 km frá Reykjavík. Stutt er að ganga á veitingastaði, í matvöruverslun, listasafn, á leikvöll og í sundlaugina. Vegurinn er malbikaður alla leið og greiðfær allt árið.
Í nágrenninu
Reykjadalur
Vinsæl gönguleið að heitum læk sem hægt er að baða sig í. Gangan hefst rétt ofan við bæinn.
Gullni hringurinn
Þingvellir, Geysir og Gullfoss eru öll í þægilegri dagsferð frá húsinu.
Bóka
